Spurt og Svarað

1. Hvernig panta ég þrif?

Það er mjög einfalt að panta þjónustu – hafðu samband við okkur með tölvupósti eða fylltu út umsóknareyðublað hér á heimasíðunni okkar. Við munum finna hentugan tíma og meta þjónustuþörf og gera þér verðtilboð.

Það er ekki nauðsynlegt. Þegar þú hefur gefið okkur viðeigandi upplýsingar um hvaða á að gera þá sjáum við um rest. Margir viðskiptavinir okkar láta okkur hafa lykla eða aðgangskóða.

Við notum áhrifarík hreinsiefni sem eru örugg fyrir fólk, dýr og umhverfið. Okkar uppáhalds vörumerki er Sonett – náttúruleg og vistvæn gæða hreinsiefni.

Nei, þú þarft ekki að útvega neitt. Við komum með allan nauðsynlegan búnað og hreinsiefni. Ef þú vilt að við notum þín eigin efni, er það líka í boði – láttu okkur bara vita fyrirfram.

Það hjálpar að fjarlægja lausa hluti eins og fatnað, leikföng eða búsáhöld, svo við getum einbeitt okkur að þrifum og öllum yfirborðsflötum. Þó getur þú einnig látið allt vera eins og það er – við aðlögum okkur að aðstæðum.

Tími þrifa fer eftir stærð og umfangi verksins. Til dæmis tekur þrif á 100 m² íbúð venjulega 2–3 tíma. Nákvæmur tími er gefinn eftir samtal eða skoðun.

Já! Við bjóðum upp á regluleg þrif – vikulega, aðra hvora viku, mánaðarlega, eða eftir annarri tímaáætlunum sem þér hentar.

Já, við erum sveigjanleg. Við getum sinnt þjónustu einnig um helgar eða á kvöldin sé þess óskað.

Já, við höfum ábyrgðartryggingu sem nær til bæði starfsmanna okkar og eigna viðskiptavina.

Til að útbúa verðtilboð þurfum við upplýsingar eins og: Tegund eignar (hús, skrifstofa, stigagangur), stærð, umfang verksins, staðsetningu, sér þarfir og ósk um tíma.

Já, við getum þrifið skrifstofur utan vinnutíma til að trufla ekki starfsemi fyrirtækisins. Við ákveðum tíma alltaf í samráði við viðskiptavininn.

Auðvitað! Við framkvæmum bæði regluleg og einstök þrif – t.d. fyrir og eftir veislur og viðburði, flutningsþrif og endurbætur.

Já, við útvegum VSK reikninga fyrir fyrirtæki, húsfélög og einstaklinga.

Við mælum með að panta með nokkurra daga fyrirvara, sérstaklega ef þú vilt ákveðinn dag eða tíma. Við reynum þó alltaf að finna tíma sem hentar, jafnvel með stuttum fyrirvara.

Það er ekkert mál! Láttu okkur vita með amk. 24 klst. fyrirvara og við breytum eða afbókum heimsóknina án kostnaðar.