1. Hvernig panta ég þrif?
Það er mjög einfalt að panta þjónustu – hafðu samband við okkur með tölvupósti eða fylltu út umsóknareyðublað hér á heimasíðunni okkar. Við munum finna hentugan tíma og meta þjónustuþörf og gera þér verðtilboð.
2. Þarf ég að vera viðstaddur meðan á þrifum stendur?
Það er ekki nauðsynlegt. Þegar þú hefur gefið okkur viðeigandi upplýsingar um hvaða á að gera þá sjáum við um rest. Margir viðskiptavinir okkar láta okkur hafa lykla eða aðgangskóða.
3. Hvaða hreinsiefni eru notuð við þrif? Eru þau umhverfisvæn?
Við notum áhrifarík hreinsiefni sem eru örugg fyrir fólk, dýr og umhverfið. Okkar uppáhalds vörumerki er Sonett – náttúruleg og vistvæn gæða hreinsiefni.
4. Þarf ég að útvega eitthvað fyrir þrifin?
Nei, þú þarft ekki að útvega neitt. Við komum með allan nauðsynlegan búnað og hreinsiefni. Ef þú vilt að við notum þín eigin efni, er það líka í boði – láttu okkur bara vita fyrirfram.
5. Þarf ég að undirbúa rýmið fyrir þrifin?
Það hjálpar að fjarlægja lausa hluti eins og fatnað, leikföng eða búsáhöld, svo við getum einbeitt okkur að þrifum og öllum yfirborðsflötum. Þó getur þú einnig látið allt vera eins og það er – við aðlögum okkur að aðstæðum.
6. Hversu langan tíma tekur venjuleg þrif á íbúð?
Tími þrifa fer eftir stærð og umfangi verksins. Til dæmis tekur þrif á 100 m² íbúð venjulega 2–3 tíma. Nákvæmur tími er gefinn eftir samtal eða skoðun.
7. Bjóðið þið upp á regluleg þrif, t.d. vikulega eða mánaðarlega?
Já! Við bjóðum upp á regluleg þrif – vikulega, aðra hvora viku, mánaðarlega, eða eftir annarri tímaáætlunum sem þér hentar.
8. Þrífið þið einnig um helgar eða utan hefðbundins vinnutíma?
Já, við erum sveigjanleg. Við getum sinnt þjónustu einnig um helgar eða á kvöldin sé þess óskað.
9. Er þjónustan ykkar tryggð?
Já, við höfum ábyrgðartryggingu sem nær til bæði starfsmanna okkar og eigna viðskiptavina.
10. Hvaða upplýsingar þarf ég að veita til að fá verðtilboð?
Til að útbúa verðtilboð þurfum við upplýsingar eins og: Tegund eignar (hús, skrifstofa, stigagangur), stærð, umfang verksins, staðsetningu, sér þarfir og ósk um tíma.
11. Þrífið þið skrifstofur og fyrirtæki utan vinnutíma, t.d. á kvöldin?
Já, við getum þrifið skrifstofur utan vinnutíma til að trufla ekki starfsemi fyrirtækisins. Við ákveðum tíma alltaf í samráði við viðskiptavininn.
12. Get ég pantað einstaka þrif?
Auðvitað! Við framkvæmum bæði regluleg og einstök þrif – t.d. fyrir og eftir veislur og viðburði, flutningsþrif og endurbætur.
13. Gefið þið út reikninga fyrir fyrirtæki og húsfélög?
Já, við útvegum VSK reikninga fyrir fyrirtæki, húsfélög og einstaklinga.
14. Með hversu miklum fyrirvara þarf að panta tíma?
Við mælum með að panta með nokkurra daga fyrirvara, sérstaklega ef þú vilt ákveðinn dag eða tíma. Við reynum þó alltaf að finna tíma sem hentar, jafnvel með stuttum fyrirvara.
15. Hvað ef ég þarf að breyta bókun eða hætta við?
Það er ekkert mál! Láttu okkur vita með amk. 24 klst. fyrirvara og við breytum eða afbókum heimsóknina án kostnaðar.

